Mötuneyti Kelduskóla
Yfirmenn mötuneyta:
Halldór Ólafsson er matreiðslumaður í Korpu
halldor.olafsson@rvkskolar.is
og
Theodór Sveinjónsson er matreiðslumaður í Vík:
theodor.sveinjonsson@rvkskolar.is
Bæði skólahúsnæðin eru búin góðum mötuneytum. Langflestir nemenda og starfsmanna borða daglega í mötuneytunum þar sem markmiðið er að bjóða upp á hollan og góðan heimilismat. Fiskur er í boði tvisvar í viku og ávextir eða grænmeti daglega.
Nemendur eiga kost á að kaupa mat í áskrift, sem greitt er fyrir mánaðarlega. Gjaldið er 9520 kr. á mánuði og er innheimt með greiðsluseðli fyrirfram, mánuð í senn.
Tilkynna þarf um breytingar á áskrift fyrir 20. hvers mánaðar annars endurnýjast áskriftin sjálfkrafa.
- Matseðil hvers dags má sjá á forsíðu vefsíðu skólans
- Í nestistímanum að morgni er ekki ætlast til að nemendur komi með fernudrykki í skólann heldur er í boði mjólk eða vatn. Í nestisboxinu er sjálfsagt að hafa hollt og gott og einfalt nesti t.d. ávexti.
Hér má finna nánari upplýsingar um skólamötuneyti Reykjavíkur.